Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

Textareitur

Yndislega fólk, veriđ velkomin á mína síđu! Látiđ einsog heima hjá ykkur og beriđi út bođiđ ađ ný síđa sé komin í bćinn.

Tenglar

Söngkeppni framhaldsskólanna 2007Pétur Ármannsson

Jæææja, nú er þessum herlegheitum lokið. Ótrúlega gaman að taka þátt í þessu og þakka ég öllum innilega fyrir stuðninginn, vorum klálrlega flottasti skólinn þarna.
Búnir að vera strembnir dagar núna undanfarið og vel tekið á því í söng og skipulagningu. Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur með dans og bakraddir og fátt geggjaðara en að fá að djamma með Buff. Einnig stóð gamli maðurinn sig vel á saxanum ;)

Eyþór vel að sigrinum kominn, algjör meistari sá drengur. Einnig voru MH strákarnir og Bjössi Ben ótrúlega nettir.
...Reyndar voru bara flest öll atriðin alveg geggjuð, og leyfi ég mér nánast að fullyrða að sjaldan hafi þessi keppni verið svona sterk, og þá sérstaklega gaman að sjá svona marga flotta karlsöngvara.

Flott mynd tekin af helgihrafn.net
Myndin tekin af helgihrafn.net

Vonandi að allir hafi haft gaman af þessu, og ef þið misstuð af getið þið tjékkað á þessu á www.ruv.is og haxað e-ð þar.

Kv. P3tur.freak

Ps. Vil feitast þakka Leifi fyrir lánið á jakkafötunum.

Bćkur n shitPétur Ármannsson

Mig langar að selja ykkur bækur:

Íslands og mannkynssaga: Frá lokum 18 aldar til aldamóta 2000
Líffræði: Kjarni fyrir framhaldsskóla (var NÁT 103 bókin mín)
Sálfræði bókin (e-t tilraunahefti sem að allir voru með fyrir 3 árum eða svo getið fengið hana fyrir nuttin)
Orð af orði
Fornir tímar (saga 103 held ég)
Sálfræði: Vöxtur og þroski
The Tenth Man
Hvid sommer


Hef náttúrulega ekki hugmynd um hvort það sé verið að nota e-ð af þessum bókum ennþá í skólanum, látið bara í ykkur heyra :**

Mad worldPétur Ármannsson

Fékk smá innblástur til að blogga. Nýtt ár og svona.

Margir sem eru að rifja upp árið, ekki man ég mikið eftir því en ég ætla að rifja upp e-ð smá sem ég man.

Barkinn var mjög skemmtilegur, tók Queen sóló út í sal, söng lag og veit ekki hvað og hvað Hemmi og læti.

Hárið var gífurlega krefjandi og maður þurfti að snerta marga líkama sem var að sjálfsögðu mjög gefandi og skemmtilegt. Smá laumuleikur hjá okkur Rúnu e-ð þá og svo byrjuðum við saman með því að fara í sleik. Það var mjög fínt.

Prófin gengu held ég bara vel, minnir mig.

Leiklistarnámskeið fyrir norðan var náttúrulega alveg ótrúlega þroskandi fyrir mig sem leikara og kjánabangsa. Hitti margt gott fólk og bara rosa gaman allt.

Leikrit í skóginum var rosa gaman, skemmtilegt fólk og skemmtilegt verkefni.

Nokkur djömm og svona um sumarið, eftirminnilegt að Eyrún dó næstum á Akureyri undir regnhlíf um versló... það var fyndið.

DANFOKKINGMÖRK núúú erum við sko að tala saman! Það var gaman. Fullt af skemmtilegu og skrítnu fólki sem maður lærði að kenna.

Uhm.. heimkoma, jól, Amma jójó lést, áramót.

Í gær í kistulagningu og í dag jarðarför.

Margt skrítið við jarðarfarir og allt það. Fíla mig ekki alveg í þessu kirkju dæmi, allir þurfa að lúta höfði fyrir mátti guðs. Og eins og presturinn sagði í einhverju guðsspjallinu "Guð tekur á móti þeim sem honum eru þóknanlegir" eða e-ð, hvað varð um að öll börn eru guðs börn?
Líka svo ópersónulegt allt, presturinn talar mónótónískt.. engin tilfinning, virkar eins og hann meini ekkert af þessu og svona.. maður veit ekki!
Allir muldra faðirvorið, fólk syngur haleluja einsog það sé verið að lesa upp mataruppskrift. Ekki mjög spennandi allaveganna.

En falleg athöfn engu að síður og ég á eftir að sakna hennar ömmu minnar mjög mikið, en stundum verður maður sig að sætta sig við dauðan, sérstaklega þegar lífsbaráttan er bara orðin of erfið og löng. Gat ekki annað en brosað í gegnum tárin þegar ég sá hana ömmu loksins í hvíldinni sem hún þráði alveg örugglega mjög mikið í kistulagningunni í gær. Rosalega erfitt samt, hólí mólí.

Talandi um hólí mólí, þá sagði ég það einmitt í kirkjugarðinum í dag og brá svo rosalega við að ég skildi segja þetta að ég horfði upp í himininn með skelfingarsvip af ótta um að vera sleginn niður af reiði guðs :\ ..gerðist samt ekki.

En já bæ

*Smá viðbót
Langar bara að predika smá frá reynslu minni (þannig að kannski á það ekki alltaf við).
Ekki láta hræðslu stjórna lífi ykkar, ekki taka ákvarðanir út frá hræðslu. "Hvað er hann að bulla?" gætuð þið verið að spyrja ykkur... Jú ég er að meina, ekki hugsa alltaf "æji ég held ég geti þetta ekki" "æji ég þori ekki prófa e-ð nýtt" Ríðið bara á vaðið, skellið ykkur í djúpulaugina, takið áhættur!
Ég var skííííít hræddur við að fara hitta alla í fjölskyldunni á Norðfirði í gær til að fara með þeim í kistulagninguna, var meiraðsegja búinn að segja að ég ætlaði bara að koma í jarðaförina sjálfa, því ég hefði aldrei farið í svona og vissi ekkert um hvað þetta snérist og e-ð bull. Síðan áttaði ég mig á því hvað þetta var ótrúlega vitlaus pæling hjá mér, að ætla hlífa mér við því að þurfa að eiga erfiða stund (og það innan um mína nánustu fjölskyldu þar sem allir voru að ganga í gegnum það sama), sem varð reyndar bara að mjög fallegri og umfram allt góðri kveðju stund.. NAUÐSYNLEGRI kveðju stund.
Ég vona að þið fattið hvað ég á við, því annars hljóma ég bara einsog vitleysingur.

Takið áhættur, farið út sem skiptinemi, farið í lýðháskóla, standiði upp fyrir framan alla og segið ykkar skoðun ef þið eruð ósammála fólki. Fólk á eftir að virða ykkur fyrir það, og þið eigið eftir að virða ykkur sjálf.
Með því að taka áhættur þá þroskast maður mest, kannski misstíguru þig, en þá veistu allaveganna að þú reyndir og þú getur ekki séð eftir neinu!

:**


Smá sprellPétur Ármannsson

Það er auðvitað ótrúlega margt að gerast hérna, og ég nenni náttúrlega aldrei að blogga því það er gehhh, datt þessvegna í hug að paste-a hérna inn smá samansafni af minnispunktur/justforfun blabla um leiklist, og já í rauninni allt í heiminum (samt bara leiklist komið í þennan lista hjá mér)
Þetta er bara sett hérna ykkur til gamans, og ef þið hafið spurningar/athugasemdir/nýjar og skemmtilegar æfingar eða leiki þá bara endilega skrifa komment!

Ef að það er einhver áhugi fyrir þessu þá skal ég halda áfram að pósta hérna hlutum sem ég bæti í þetta. En munið að þetta eru bara rissur fyrir mig til að muna þannig að þetta er allt illa stafsett og tætingslegt, þannig að bara spyrja fyrir útskýringar!

Aðgerðardagbók

 

26.10.06

 

Teater-Interessegrupper

Þétt í hring, allir slá á bakið á hvorum öðrum og svo bara útum allan líkama

 

Labba um og heilsa öllum á mismunandi tungumálum, aldrei sama tungumálið 2x (má vera bull mál)

Labba um og knúsa

Labba um og kyssa 3x (á kinnarnar þeas.)

Slá utanundir (slá alvöru)

Labba um og hitta e-n og játa ást þína á honum/henni á bull tungumáli

Sama nema að hata og drulla yfir hann á bull tungumáli

 

Lionface lemonface

 

Hlátursjógaæfingarnar – Klæðskerinn, slátturvélin, sérhljóða”hógípógí”hlátur, labba um með mismunandi hlátur og heilsa hinum með honum, liggja og horfa uppí loftið og hlægja.

 

Allir í hring, allir taka 4 skref inn og 1 gerir e-r hljóð hinir herma eftir því á leiðinni út. Skipt um mann eftir hvert skipti

 

Labba um í mismunandi status, Hár lár normal

 

2 saman í holli, spjalla um ekki neitt, veðrið td. Skipta síðan um status, Hár, lár, normal, hægt að prófa að verða reiður

 

Skipt í tvo hópa, gera kyrrmyndir um ást, hatur, hlátur, sorg.. svo má byrja hreyfa sig og gefa frá sér hljóð, ekki tala, svo stoppa aftur og sjá hvort að myndin hafi breyst. Svo lifnar hún við aftur og þá má tala og svo stoppa aftur. Seinast breytist myndin í ýkta-grín sorgarmynd.

 

2 og 2 saman, móti hvorum öðrum með góðu millibili, hittast og heilsa hvorum öðrum, venjulega, þið hafið ekki hist lengi, eruð reiðir út í hvorn annan, vandræðanlegt móment þar sem þið komist ekki framhjá hvorum öðrum, labbið framhjá hvorum öðrum en fattið síðan að þið þekkist, annar verður ástfanginn og vill ekki hleypa hinum framhjá.

Sömu 2 saman, fjarlægðar æfingar, alltaf jafn langt millibil og annar stýrir, ef hann kemur nær þarft þú að fara fjær, prófa með mismunandi fjarlægðum. Ef hann hallar, hallar þú! Skipta um stjórnanda.

 

Einn stjórnar 4-5 Einn stjórnast af hægri fót, einn af vinstri fót, einn af vinstri hönd, einn af hægri hönd og einn af haus

 

Einbeiting:

Allir í hring, einn í miðjunni að reyna láta hina hlægja, hinir eiga að vera súrir á meðan. Þeir sem ná að halda andliti fara í röð á meðan hinir reyna láta þá hlægja.

Hægt að velja 2 sem ekki fara að hlægja leika saman senu, heppilegt ef það er strákur og stelpa, hægt að láta þau spinna saman, samt eru þau alltaf súr í framan. Prófa að láta þau verða ástfangin af hvoru öðru, samt súr í framan.. ómeðvitað breytist líkamsbeiting

 

Koma inn um dyr, mismunandi aðferðir við það. Einn kemur inn meðan allir hinir bíða fyrir innan og horfa á hann koma inn. Mismunandi aðferðir: Koma beint inn og setjast. Hurðarhúnninn er fastur, þú ert að koma of seint í tíma og vilt ekki láta taka eftir þér, þú ert aðal töffarinn og er að koma inn, ert bara ótrúlega vandræðanleg týpa sem klúðrar öllu.

Hægt líka að láta fólk fara inn út um dyr. Læsa hurðinni, þá þarftu að finna út hvernig þú kemst út, því þú ert að drífa þig til að gera e-ð, td. ljósrita r what ever.

 

2 saman í hóp, einn er upp við vegg með armana út meðan hinn labbar, þegar hinn lætur armana niður þá á hinn að stoppa (getur auðvitað ekki séð hvenær það gerist en hann á að finna það á sér) prufa að snúa gaur með armanna við þannig að þeir sjái ekki hvorn annan.

 

Allir labba um (passa að það sé ekkert autt pláss á gólfinu) Hópurinn á að finna á sér hvenær hann á að stoppa, og líka hvenær hann á að fara af stað! (Alveg bannað að gefa frá sér hljóð, og enginn einn á að stoppa fyrst, þetta á bara að gerast ómeðvitað)

 

Allir labba um og þú átt að finna þér partner með augnsambandi og daðra við hann í smá stund (líkt og kynlíf, vilt ekki bara rusha hlutina, átt að leika þér þangað til tilfinningin verður óbærileg, þá hlaupiði saman og gefið hvoru öðru high five (hopp) Hægt að prófa líka með að slá undir og að setjast niður saman (bak í bak yfirleitt). Verðið að ákveða hvað þið ætlið að gera án þess að talast á, bara hrópa það aftur og aftur í huganum þangað til það verður óbærilegt og þá gerið þið það.

 

Búa til rotaition þar sem að þið notið kannski 5-6 hreyfingar sem þið takið í loopu (hrinavitleysu what ever) td. slá utan undir, játa ást ykkar, skamma hinn (hata), gefa high five, setjast niður með hjálp hins (þá stendur annar en hinn sest niður án þess að nota hendur eða neitt, bara með hjálp hins líkamans), kyssa á kinnarnar, knúsa.

Í þessu eruð þið 2 saman og þið ákveðið í hvaða röð og hvernig þið gerið þetta (muna að byggja upp spennuna(í leiklist má aldrei gera neitt án þess að það hafi einhverja ástæðu(Motivation))

Og þegar þið eruð búin að ákveða og æfa þetta sýnið þið hinum og gerið þið þetta í loopu aftur og aftur.

 

Motivation æfing (ásetningur)

Tveggja manna æfing

Einn í sitt hvoru horninu á sviðinu með mismunandi motivation. Td. Einn á að fá hinn til að missa stjórn á skapi sínu, hinn á að fá hinn til að fara gráta.

Einn á að fá hinn til að nudda sig, hinn á að reyna fá hinn út úr herberginu... Notið hugmyndarflugið.

MUNA: Þú gerir ALLT til að ná fram þínu motivationi, þínum ásetningi, og hættir ekki fyrr en þú nærð honum fram. Prufaðu mismunandi taktík til að ná fram áætlunarverki þínu.

 


Gaman gaman, leikið ykkur nú!

FOKKING FOKKK!!!Pétur Ármannsson

  1. Hvað kallaru mig?
  2. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
  3. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
  4. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndiru halda að ég væri á föstu eða lausu?
  5. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
  6. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
  7. Hvernig strákur er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
  8. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
  9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
  10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
  11. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
  12. Hvað giskarðu á að ég verði gamall þegar ég trúlofa mig?
  13. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
  14. Hvernig strákastelpur/stráka fíla ég?
  15. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
  16. Hvað er mest einkennandi við mig?
  17. Hvaða búðir elska ég að fara í?

NupersovaPétur Ármannsson

Enn einu æsi  spennandi kvöldi af Rockstar:Supernova lokið. Phil nokkur Ritchie rekinn heim með skömm! Skammastu þín fyrir að sýna þessum metnaðarfullu og heillandi rokkurum ekki nægan áhuga.
Leðurlatexblakan Zayra (sjá mynd) kom  sú og sigraði eftir ótrúlega eftirminnilega frammistöðu, sem ég reyndar missti af þar sem ég skipti um stöð og hækkaði í tölvunni.

 

Þegar Zayra var spurð hvað henni fyndist um brottrekstur Phil svaraði hún einfaldlega “Me love taccos and burritos, fajitas yes... McDonalds no”.

Virðist nú að flestir mótmælendurnir á Kárahnjúkum séu að halda til Bandaríkjanna, og hafa þeir breytt slagorði sínu yfir í “Zayra leads, Phil Ritchie bleads”Zayra Alvarez keppandi í Rockstar:Supernova

 

Eftir keppnina héldu keppendurnir heim í svokallað “eftirparty” þar sem að rokkararnir sletta ærlega úr klaufunum.

Samkvæmt heimildarmönnum mættu þeir Supernova menn á svæðið og skemmtu sér með krökkunum, sumir þó meira en aðrir. Tommy Lee, trommari í bandinu, vatt sér víst upp að Zayru og spurði hana hvort hann mætti setja burrito í taccoið hennar. Hún á að hafa reiðst og sagt; “No burritotacco! Me looooove fajitas and salsa”



Nóg af bulli. Gott kvöld í gær hjá okkur Rúnu, tekið því rólega hérna heima bara. Tiltektir og almenn leiðindi hinsvegar í kvöld.

Borgarfjörður um helgina alveg klárlega málið, allir sem eru menn með mönnum fara þangað og sletta rækilega úr sprellanum og dansa við taktfasta músík Emiliönu Torrini!



Much love,

P3t

Helst í fréttum...Pétur Ármannsson

...eftir langar rannsóknir hefur komið í ljós að við Tyrkjaránið var Tyrkjum rænt, heldur Íslendingum og hefur því þegar verið hafin víðfeðm leit af þeim sem rænt var.

...hundar kvarta yfir miklu þunglyndi vegna tíðrar spilunar á laginu Ó, María í flutningi Grétu Mjallar Samúelsdóttur og systur hennar Hólmfríði Ósk. Hundar bera fyrir sig að í þessu lagi megi greina hljóð á svo hárri tíðni að menn skynja ekki, en hundar engjast um af kvölum.

Við nánari rannsóknir virðist sem svo að þetta séu reyndar ekki kvalir sem hundarnir eru að upplifa, heldur hvalir.. sem hafa verið mjög skæðir undanfarnar vikurnar, ásamt “Ó, María” að sjálfsögðu.

...mikil skemmdarverk hafa verið unnin á byggingu Bónus á Egilsstöðum, þar sem að óprúttnir mótmælendur hafa úðað með úðabrúsa á veggina slagorð sitt “Alcoa leads, Iceland bleads”. Ekki hefur verið unnt að greina hvað slagorðið þýðir, því það er á ensku. Beðið er eftir tungumála-sérfræðingi til að rýna í málið.

...Jesús hefur sótt um lögskilnað við foreldra sína, Maríu Mey og Jósep “smið” Hannibalsson.

Gífurlegt rifrildi blossaði upp á milli Jesús og Jóseps vegna útivistartíma og endaði þetta með ósköpum, Jesús öskraði “Þú ert ekki alvöru pabbi minn!” og strunsaði í burtu. Sótti hann svo um skilnaðinn og vil láta kalla sig Jesús “sonur Guðs” héðan í frá, “Jessi”, “Sússi” og “Zed man” mun einnig virka.

...Sést hefur til skrítna vera í Egilsstaðarskógi að undanförnu. “Já, þetta virðast vera einhver krakka skrímsli sem hlaupa um með óhljóðum og láta öllum illum látum” frá þessu greindi fashana-fræðingurinn Jörg Ben Ástvaldsson, sem dvalist hefur hér á landi í rúman annan tug ára við rannsóknir á fashönum hér á landi.

Til þessa hefur hann ekki fundið neinn fashana, en aðspurður sagðist hann þó ekki vera svekktur yfir árangrinum því hann hafi séð um 7 snjótittlinga og fundið eitt prince polo súkkulaðistykki.

Yfir og út,

Pétur

Ps. Leikrit í skóginum, skemmtilegt, mætið, sýning á sunnudaginn klukkan 8

PPs. Ef ykkur fannst þetta fyndið eða skemmtilegt að einhverju leiti látið þá í ykkur heyra og ég geri þetta kannski áfram.

Könnun

Hvort okkar á svalara der?

Leit

Gagnasafn